Backstreet Boys
Árið 1992 var maður að nafni Lou Pearlman sem vildi stofna hljómsveit. Maðurinn hafði alla sína ævi reynt að fara auðveldustu leiðina að því að verða ríkur. Í kjölfarið á miklum vinsældum New kids on the block og bresku strákahljómsveitinni Take that ákvað hann að gera tilraun til að stofna Bandaríska strákahljómsveit sem gæti sungið órafmagnað eða „accapella“ svona í anda Boys II Men. Þetta hafði augljóslega ekki verið gert áður í þessari mynd sem fyrirhuguð var. Árið 1993 var hljómsveitin fullmótuð með fimm ungum strákum sem hétu, og heita, Nick Carter, Alexander James McLean, Howie Dorough, Kevin Richardson og Brian Littrell. Hljómsveitin fékk nafnið Backstreet Boys. Fyrstu lögin sem þeir útsettu voru Lover boy og Get ready og fljótlega eftir það voru haldnir fyrstu tónleikarnir þeirra fyrir 3000 unglinga í SeaWorld í Orlando, Florida. Í kjölfarið komu margir tónleikar á ýmsum stöðum eins og verslunarmiðstöðvum og skólum ásamt því að Johnny Wright, sem hafði unnið með New kids on the block, var fenginn til að semja og útsetja lög fyrir strákana.


Wright hófst strax handa og þann 6. maí 1996 kom út fyrsta plata strákanna sem bar nafnið „Bacstreet Boys - International“. Á plötunni voru lög á borð við We’ve got it goin’ on, Anywhere for You, Get down (You’re the one for me), I’ll never break your heart og Quit playing games (whith my heart). Platan náði miklum vinsældum um heim allan og seldist í yfir 8 milljónum eintaka. Diskurinn var síðan endurútgefinn árið 1997 með nokkrum endurbótum og á þeim diski mátti finna lögin Everybody (Backstreet’s back) og As long as you love me. Seinni útgáfan var einungis gefin út í Bandaríkjunum og seldist sú útgáfa í 3 milljónum eintaka og því seldist Bacstreet Boys diskurinn samanlagt í yfir 11 milljónum eintaka. Strákarnir gáfu síðan út diskinn „Backstreet’s back“ árið 1997. Diskurinn innihélt slagarana Backstreet’s back og As long as you love me, eins og Bandaríska útgáfan af fyrri disknum gerði en annars voru ný lög á honum. Sá diskur seldist í litlum 28 milljónum eintaka. Ekki slæm byrjun þar.

Fyrsti diskurinn var gefinn út á mjög góðum tímum. Pop-tónlist var að ryðja sér rúms i Bretlandi og Bandaríkjunum með tilkomu Spice Girls og Hanson bræðrana. Vinsældir hljómsveitarinnar voru því stigmagnandi og í desember 1997 fóru þeir í tónleikaferðalag um 60 borgir í 20 löndum. Lou Pearlman stofnandi hljómsveitarinnar tók inn 75% af heildargróða hlómsveitarinnar og í kjölfarið ákvað Brian Littrell að höfða mál gegn honum. A.J, Kevin og Howie komu seinna inn í málið sem endaði með samningum og fór því aldrei fyrir rétt. Árið 1998 ákváðu strákarnir að fresta nokkrum tónleikum vegna þess að Brian þurfti að fara í hjartaaðgerð. Brian hafði frestað aðgerðinni í dágóðan tíma en hann verið þjáður af hjartabilun siðan hann var fjögurra ára gamall en þá hafði hann verið nálægt því að láta lífið vegna sýkingar. Árið 1999 fengu strákarnir RIAA verðlaunin fyrir að hafa selt Backstreet boys plötuna sína í yfir 10 milljónum eintaka og í kjölfarið réðu þeir nýja útgefendur sem kölluðu sig „The Firm“ en þau höfðu séð um fræg bönd eins og Limp Bizkit og Korn. Strákarnir kærðu Pearlman nokkrum sinnum á árinu og í lokin var talið að Backstreet Boys hefðu, með hjálp The Firm, keypt hann út úr hljómsveitinni.

Lagið I want it that way var gefið út í apríl 1999 og í kjölfarið á því var platan Millenium gefinn út í maí sama ár. Platan var hressilega auglýstur á MTV sjónvarpstöðinni, bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi. Millenium platan seldist í 500.000 eintökum á fyrsta degi í Bandaríkjunum og var það met í sölu á fyrsta degi. Platan var einnig mest selda plata ársins 1999 en hún seldist í 9.445.732 eintökum. Í heildina seldist platan í yfir 40 milljón eintökum. Platan var í fyrsta sæti á Billboard 200 listanum í 10 vikur samfleytt og á listanum var platan í 43 vikur. Á plötunni voru frábær lög eins og Larger than life, I want it that way, Show me the meaning of being lonely og The One. Ljóst var að hápunkti frægðarinnar hafði verið náð.

Einu og hálfu ári eftir útgáfu Millenium kom út önnur plata hjá Backstreet Boys, Black and Blue. Strákunum gekk mjög vel og því var ákveðið að ótrautt áfram. Black and Blue platan seldist mjög vel og strákunum tókst að selja yfir milljón eintök af plötunni á innan við viku og voru þeir fyrsta hljómsveitin sem tókst að ná þeim áfanga að selja yfir milljón eintök af nýrri plötu tvisvar í röð. Platan komst í fyrsta sætið á Billboard 200 listanum en þrátt fyrir frábæra sölu þá náði hún aldrei sama flugi og plöturnar Backstreet’s back og Millenium. Black and Blue platan seldis í heildina í 15 milljón eintökum en á henni voru þrjú lög sem náðu langt en þau voru The Call, Shape of my heart og More than that. Í byrjun ársins 2001 hófu þeir síðan tónleikaferðalag til kynningar á nýju plötunni. Tónleikarnir voru 5 talsins en þeir voru allir teknir upp og því var kostnaður við þá mjög hár. Seinni hluta Black and Blue tónleikaferðalagsins var frestað þangað til í september vegna þess að A.J. hafði leitað sér hjálpar vegna áfengis- og dópneyslu ásamt því að þunglyndi var farið að herja á hann. Þegar ferðalagið var rétt hafið á nýju lést Daniel Lee, náinn samstarfsfélagi þeirra, í árásinni á tvíburaturnana í New York þann 11. september. Lee var í annari flugvélinni ásamt óléttri konu sinni þegar slysið varð. Dauði Lee varð til þess að ekkert varð af ferð þeirra til Evrópu og hætt var við tónleikaferðalagið.
Árið 2002 fór að hrista í stoðum Backstreet Boys. Strákarnir vildu losna frá útgefendum sýnum The Firm og hljómsveitin tók sér pásu. Nick Carter gaf út plötu sem bar nafnið Now or Never en hún náði hæst 17. sæti á Billboard 200 listanum. Í desember 2003 kom A.J. fram í Oprah Winfrey og tjáði sig um áfengis- og vímuefnavanda sinn í fyrsta sinn opinberlega. Í þættinum komu strákarnir A.J. á óvart og mættu allir til að styðja hann á þessum tíma. Í þættinum sást mjög vel hve sterk heild hafði myndast innan hópsins og þá sérstaklega milli Kevin og A.J. en það var Kevin sem fékk A.J. til að hugsa út í hve slæm líferni hann hefði í raun myndað sér. Í kjölfarið á þættinum hófu strákarnir viðræður um að taka upp þar sem frá var horfið og byrja að syngja aftur saman. Árið 2004 varð sá draumur að veruleika og þeir hófu tónleikaferðalag í Asíu. Í kjölfarið á vel heppnuðum Asíu-túr fóru þeir til Mexico og byrjuðu að semja nýtt efni.
A.J. tjáir sig um vímuefnavanda sinn hjá Oprah Winfrey.
Ný plata kom síðan út árið 2005 eftir þriggja ára pásu. Platan fékk nafnið never gone og innihélt lög eins og Incomplete, Just want you to know og I still. Platan var aldrei nálægt því að seljast eins mikið og þær fyrri en hún seldist mest í Japan þar sem hún varð önnur söluhæsta platan frá vestrænu ríki árið 2005. Í heildina seldist Platan í 10 milljónum eintaka. Fljótlega hófu strákarnir tónleikaferð um Bandaríkin og Ástralíu til að kynna nýju plötuna sína. Sama ár gaf Brian út lagið In christ alone og náði það fyrsta sæti á Bandaríska kristna topplistanum en árið 2006 fylgdi hann þessu lagi eftir og gaf út plötuna Welkome home sem var kristilegur plata og náði hún hæst þriðja sæti á kristilega Billboard listanum og seldist í rúmlega 100.000 eintökum.


Í Júní 2006 gaf Kevin Richardson út tilkynningu þar sem hann sagðist vera hættur í hljómsveitinni. Ástæðurnar sagði hann vera kaflaskipti í sínu lífi og að hann vildi fara að einbeita sér að öðrum hlutum en Backstreet boys. Kevin, sem var elstur í Backstreet boys, sagði að hinir strákarnir myndu alltaf vera litlu bræður hans og munu ávallt vera í hjarta hans. Í október 2007 gáfu strákarnir út sína nýjustu plötu, Unbreakable. Þetta var fyrsta platan sem þeir gáfu út án Kevin. Platan náði aldrei neinu flugi né lögin sem á henni voru. Hún hefur selst í rúmlega milljón eintökum þannig að þeir ná allavega að standa undir kostnaði á stúdíóinu og fá kannski eitthvað aðeins í vasann líka. Strákarnir höfðu síðan hugsað sér að gefa út nýja plötu árið 2009 en í millitíðinni mun A.J. gefa út sína fyrstu sólóplötu.
Hingað til hafa drengirnir einn af öðrum reynt að einbeita sér að sínum sólóferli en það hefur ekki gengið sem skildi, greinilegt er að fólkið vill ekki sjá þá einn og einn heldur alla saman. Drengirnir hafa gefið út 6 plötur og unnið yfir 200 verðlaun á 13 árum. Hljómsveitin er lang vinsælasta strákahljómsveit sem komið hefur fram í sögunni. Flestir eru þeir núna komnir á fertugsaldurinn og ekki er enn hægt að sjá að þeir ætli sér að hætta. Margir hafa sagt að lykillinn að þeirra góðu endingu saman sé bræðralag, vinátta og ást. Það sé mikilvægur hluti af því að þeir hafa náð að þrauka svona lengi og vel.

) Ég held alveg áfram að brosa og mér líður ágætlega. Kannski að ég sakni þess bara að mamma kyssi mig góða nótt.